Ég held að ég bloggi bara um þetta!
Herðu, það er bara miiikið búið að vera að gerast!

Ég, mamma, Stefanína, Aldís og Sólveig skelltum okkur til Köben í kvennaferð haha

Vorum þar í SFR íbúð (:
Ég og mamma fórum semsagt til Rvk 7.feb með rútu, sem ætlaði nú varla að komast vegna þess að það var óveður. En við komumst nú á endanum í kópavoginn

Svo vorum við alveg ótrúlega heppin að geta flogið á föstudeginum, vorum í síðustu flugvélinni sem að fór frá íslandi, þurftum reyndar að vera spennt í beltin mest allan tíman vegna þess að það var svo mikil ókyrrð í lofti.
En hvað með það, ég var bara fegin að miss af óveðrinu sem kom síðan haha

Svo þegar að við vorum komin til DK, biðum eftir töskunum okkar og svona, en... taskan hennar Sólveigar ætlaði bara ekkert að láta sjá sig

Kom síðan í ljós að hún hafði orðið eftir á Íslandi! ><
Við gátum ekki mikið gert í því, nema að hún fyllti út einhverja skýrslu og síðan fórum við bara í lestina að Nörrebro.
Þá tók við að finna helvítis íbúðina! haha Botnuðum ekkert í kortunum sem við höfðum og við töluðum við einhverja konu, sem lét okkur labba í vitlausa átt....
Við fundum þetta nú, klöngruðumst með allan farangurinn okkar uppá fimmtu hæð! Þetta var alveg helvíti næs íbúð (=
Næstu dagar fóru svo bara í að versla! og það ekkert lítið, H&M var algengur stoppustaður haha

Svo var ekkert lítið sem að ég lenti í, eitt kvöldið fórum við út að borða á stað sem heitir Sultan Palace, og er rétt við Strikið, þetta er í annað skipti sem að ég fer á þennan veitingastað og í bæi skiptin lentir maður í kynferðislegu ofbeldi!
Ekki, ég endurtek ekki fara á þennan stað! allavegana ekki þegar að eigandinn sjálfur er þarna, hann er fokking ógeð!
Burtséð frá því var ferðin æðisleg!

Sunnudagurinn var bara svona "túrista dagur". Allar eða flestar búðir lokaðar og Mamma var sú eina sem hafði ekki komið til DK, svo að við löbbuðum, takið eftir LÖBBUÐUM frá Nörrebro, niður á Strikið og síðan á Nyhavn og þaðan að litlu hafmeyjunni! og það er enginn smá spotti! haha

Það var reyndar alveg helvíti gaman hjá okkur Aldísi þá, í spæjaraleik! hahah

Á bakaleiðinni, þegar að allir voru búnir að taka mynd af þessari pínulitlu hafmeyju, sáum við þennan skemmtilega risastóra gosbrunn!
Þá fékk ég líka þessa brilliant hugmynd, þar sem að það er ekki vatn í gosbrunnunum þarna á veturna, langaði mig alveg ofsalega til þess að klifra uppá gosbrunnin! Og Aldís var sko alveg meira en til í það haha



Svo hugsa ég að við höfum gefið öllum krökkunum þarna rosalega skemmtilega hugmynd

Á leiðinni til baka löbbuðum við í gegnum Amalieborg, og sáum að drottningin var heima.. Við fórum að skoða verðina með flottu hattana sem að meiga ekki breyta um svipbrigði né neitt haha.
Svo voru svona varða-skipti.. Allríeinu kom hópur af vörðum labbandi beint í áttina til okkar og við höfðum ekki hugmynd um að við áttum að færa okkur frá, fyrr en að sá sem stóð á bakvið okkur fór að banka byssunni sinni í jörðina og gerði alveg þvílík læti og benti okkur að koma okkur frá. haha

Eftir þetta fórum við á ítalskann pizzastað á Nyhöfn og fengum okkur gómsæta pizzu! Ég var ekkert smá gráðug maður haha.
Ég, Aldís og Sólveig skelltum okkur svo í biografen! og sáum Sweeney Todd, bíóið var svona eins og leikhús, maður fékk sætanúmer og svona, og það var ekki hægt að fá popp! Bara bjór haha

Ég er nú ekki mikið að hvarta undan því neitt (:
Eftir bíóið ákváðum við að taka bara taxa heim því að við nenntum enganvegin að labba..
Þegar við sögðum bílstjóranum hvert ferðinni væri haldið horfði hann bara á okkur með "er ykkur alvara" augnarráði.. Við héldum að hann vissi ekki hvar þetta væri og sögðum að þetta væri á Nörrebro, og þá segir hann: "Þetta er ekki góður staður til að vera á".
Við höfðum ekki hugmynd um hvað hann var að tala og spurðum afhverju, hann segir okkur þá að þar sé allt í rugli og leigubílstjórar hefðu fengið viðvörun um að fara helst ekki til að fara þangað.
Þá voru semsagt einhverjir hópar, flest ungir innflytjendur búnir að kveikja í og velta einhverjum bílum, brjóta rúrður í bönkum og búðum og allt í rugli.
Bílstjórinn ætlaði varla að þora að fara með okkur, en þorði því síðan að lokum

Við flýttum okkur upp til að segja mömmu og Stefaníu fréttirnar og þær urðu alveg helvíti forvitnar, þar sem að hvorki sjónvarpið, né netið virkaði hjá okkur fékk ég þær bara með mér á vettvang óeirðanna haha

Þetta var neflinlega allt í næstu götu við okkur! Við fórum út, sáum brotnu rúðurnar í bönkunum og myrkvaðar götur og reykjarmökk þar fyrir innan, þar sem hafði greinilega verið kveikt í og nýbúið að slökkva..
Mamma sagði að ég væri svo óvarkár, þessvegna leyfði hún mér ekki að fara nær!

Síðan labbaði hún á kall sem var að hjóla framhjá, talandi um að vera varkár....
Dagurinn eftir þetta var complete verslunnardagur! Vöknuðum snemma og vorum komnar á Strikið þegar að búðirnar opnuðu!

Fórum í þær búðir sem að við vildum fara í og tókum síðan lestina á Örestad, og þar fórum við í Fields! sem er fokking humangos verslunarmiðstöð! ...Smáralind hvað?
Lestarkortið mitt var eitthvað beyglað svo að stimpilvélin gat ekki klippt af því, svo að ég fór bara í lestina án þess að láta klippa af kortinu og eftir að hafa verið þar í smá tíma, kemur einhver kall sem var að vinna þarna, og vill fá að sjá miðana okkar..
Þá segi ég honum að ég hafi ekki getað klippt af kortinu og bað hann um að gera það fyrir mig, þá varð hann ógeðslega fúll og sagði "já það getur nú hver sem er sagt þetta.. hmpfr". Meina, hvað átti ég að gera, gat hann ekki bara drullast til að klippa af helvítis kortinu! -.-"
Hann gerði það nú á endanum...
Svo eyddum við hellings tíma í mollinu, og versluðum alveg fullt (= þar á meðal buxur og skó

Þetta kvöld framkvæmdum við Aldís loksing hugmyndina sem að ég var búin að fá, sem var að gera svona "trashing a hotelroom" mynd (= Við fundum neflinlega gult sjónvarp inní einum eldhússkápnum haha



Fólk segir að við frænkur séum skrýtnar.. ég skil ekki alveg hvað það á við með því?
Talandi um skrýtið fólk (meira svona fulla dani). Við vorum að labba meðfram sýkinu sem var hjá íbúinni okkar, á laugardagsmorgni... Þar sáum við á bakkanum tvo gaura á nærbuxunum og eina stelpu sem voru rennandi blaut, nýbúin að vera að synda í sýkinu haha

Ég fór til þeirra eins og asni og segi "heii, má ég tala mynd af ykkur?!" haha

þau samþykktu það alveg

skal meirasegja setja hana inná bráðlega

Síðasta kvöldið og morguninn fór í það að gjörsamlega troooða ofaní töskurnar og þrýfa íbúðina.. Síðan dröttuðumst við á lestarstöðina, og á leiðinni brotnaði annað hjólið undan töskunni minni, andskotinnn hafi það!
Við Aldís náðum sæti fremst í lestinni!

og biðum sko spenntar eftir að fara á stað!

En getiði hvað, við lentum næstum í lestarslysi..

Allt í einu kemur bara lest á móti okkur, hún náði að stoppa rétt fyrir framan okkur, sem betur fer vorum við ekki lögð af stað... hee
Svo var einhver bið vegna bilanar í lestarkerfinu eða eitthvað svoleiðis...
Altaf er það eitthvað svona þegar að við Aldís náum fremst einhversstaðar, eins og til dæmis þegar að við vorum síðast saman í Danmörku, vorum í tívolíinu og vorum að fara í svona 4 skiptið í stóra rússíbanan, náðum fremst og hvað gerist?
Rússíbaninn bilaði -.-" og við þurftum að bíða eftir að við yrðum losaðar úr honum...
Allavegana, þetta var alveg æææðisleg ferð!

Svo er líka mikið búið að gerast eftir að ég kom heim, ætla nú ekkert að fara útí það í smáatriðum en ég get sko sagt ykkur það að ég er komin í stjórn nemendafélagsins í MB, er nýji formaður skemmtinefndar (:
Og nú er það bara það að ráðast á fullu í að undirbúa árshátiðina, sem verður að sjálfsögðu glæsileg

Og Pál Óskar ball eftir á ^^
Við skelltum okkur síðan nokkur héðan á ball í keflavík, það var helvíti gaman, verst hvað það var erfitt að halda sér vakandi í skólanum daginn eftir haha

Tjekkið á www.flickr,com/photos/kelaa þar eru einhverjar skemmtilegar myndir
Að lokum vil ég segja að þú ert fokking maniac ef að þú nenntir virkilega að lesa þetta lengsta blogg sem að ég hef skrifað, endilega láttu vita af þér með kommenti! 
Rakel Erna Skarph ;D;*