Kæru landsmenn!
Ég er alveg viss um að þið voruð farin að hugsa um hvort að það væri ekki að fara að koma nýtt blogg frá mér!
Well.. Here it is! 
Ætla nú bara að byrja á því að segja: Gleðileg jól! ;*
Það var helvíti gott að komast í jólafrí verð ég nú að segja, þó að mér sé farið að leiðast frekar mikið núna
Stelpurnar allar lengst útí sveit og ég föst í Borgarnesi! jee...
Ég, Valdís, Rakel og Siggi ætluðum að vera geðveikt sniðug og skella okkur í smá útilegu
Við komum í Flugu(skálinn) í 15 stiga frosti, ahh það er alltaf svo gott að koma þangað, snjór yfir öllu og tunglskinið og stjörnurnar lýstu allt upp! Geðveikt kósý.
Ég komin með allt myndavéladótið upp á meðan Siggi reynir að opna húsið, en ekki hvað, um leið og ég kveiki á myndavélinni þurfum við að fara, lásinn frosinn og ekki hægt að komast inn, rétt búið að loka öllum sjoppum í plássinu svo að hvergi gátum við fengið eitthvað til að opna með. )=
Þannig að þetta var fýluferð.
Daginn eftir sór ég síðan í ö2 og ekkert meira, svo um kvöldið ákvað ég bara að skella mér á ball í Varmalandi, Óli var svo góður að bjóða mér far með honum og pabba hans! haha;D
Akkúrat það sem að ég þurfti! Ahh, sveitaball með Stuðbandalaginu! Sigurborg var hress að vanda og við misstum okkur sko í heitum dans! 
Og já, þegar að leið á kvöldið varð maður nú alltaf hressari og hressari, wonder why, haha
Guðfinna og Dagný og Guðný voru þarna hressar! og ég sé bara alls ekki eftir því að hafa skellt mér (:
Vaknaði í morgun þegar að Gunnhildur og Lára komu og fengu ökubókina mína lánaða, leið eins og að ég hafi sofið í svona mestalagi 5 mínútur.. Svo er ég bara búin að vera í ökuskólanum í dag og eftir það bara gjörsamlega að dreeepast úr leiðindum, hata svona daga -.-"
Hanga ein allan daginn! jee uppáhaldið mitt! ohh..
Well ég er þó búin að uppgötva Illustrator haha
Ætla svo að reyna að komast eitthvað í bæinn bara (: Verð svo heima um áramótin, já og svo er auðvitað málið að skella sér í Valfell!

Endum þetta með glæsibrag með mynd af Gunnhildi síðan á furðufatadegi MB! ;D;*
Rakel Erna;*
HRÚTUR 21. mars - 19. apríl
Láttu sýnina um hvernig hlutirnir gætu verið gefa þeim tilgang.
Það er eins og lífið gefi þér fingramálningu til að búa til stórkostlega og litríka óreiðu.
Nú langar mig í fingramálningu )=